8.12.2008 | 22:35
Aðventan hálfnuð...
Jæja, þá er búið að kveikja á kerti númer tvö á aðventuljósinu... aðventan þessi æðislegi tími virðist ætla að líða alltof hratt. Engu að síður erum við að njóta hennar í botn.
síðasta vika var viðburðarrík í okkar lífi....
Það sem ber helst er:
Við fórum á jólaball í Hólabergi... þar tróðu upp eurobandið og sveppi kom, ásamt jólasveininum. Strákarnir skemmtu sér rosalega vel, þó sérstaklega emil þar sem hann heldur mikið upp á sveppa og missir ekki af þætti með honum í barnaefninu um helgar. mér sjálfri finnst sveppi nú stundum fara yfir strikið í barnatímanum og ekki vera mjög barnvænn,,,, en hvað um það, börnin geta kannski alveg eins lært að gera símaat hjá sveppa eins og hjá bekkjarsystkinum.
nú... okkur var boðið í heimsókn í leikskólann hjá Emil í vikunni. Þar höfðu krakkarnir á hans deild æft helgileik og var Emil þar í hlutverki Jóseps. hann skilaði sínu hlutverki vel og var ég bara stolt af litla stráknum mínum.... hann endaði svo á því að bjóða til kaffisamsætis fyrir hönd leikskólans og þáðum við kaffi, heitt kakó og kökur. Falleg stund
ég og emil fórum á jólamarkað upp á Skálatúnsheimili í vikunni og var það bara gaman. Það er ótrúlegt hvað maður þekkir marga ennþá sem eru á skálatúni, auðvitað þekki ég íbúana alla en sama starfsfólkið virðist vera líka að vinna á Skálatúni í stórum stíl, fólk sem vann með mér þar fyrir fjölda árum.
Ég fékk líka einn dekurdag í vikunni. Fór í klippingu og strípur hjá ekki ómerkari manni en Baldri sem átti áður stofuna mojo. Það var bara æðislegt að fara til hans og er ég mjög ánægð með klippinguna mína og strípurnar og mun án efa leyfa dýrustu skærum landsins að koma aftur við mitt hár (allavega segir séð og heyrt að hann noti dýrustu skæri landsins og ekki lýgur séð og heyrt9
Er ég ekki fín
Ég fer enn í ræktina 5 til 6 sinnum í viku og bæti við, er í trimform með framað jólum. Ég kannski kemst ekki í kjólinn fyrir jólinn, en ég vonandi kemst í kjólinn fyrir fermingu... það er mitt markmið.
Á laugardagskvöldið var svo hjónaklúbbur hjá okkur... við stelpurnar úr þroskaþjálfaskólanum hittumst ásamt mökum og börnum, vorum alls 17 stykki... og allir koma með einn rétt á hlaðborð. Þessi kvöld eru mér ákaflega dýrmæt enda um yndislegar stelpur að ræða og yndislega maka þeirra og börn. Við skemmtum okkur saman í marga klukkutíma og er það núna bara von okkar að Dóra og steini geti verið með okkur næst...
Sunnudagurinn var engu að síður tekin með trompi en þá fórum við emil og steini með Fríðu vinkonu minni og Úlfari í jólalandið í hafnarfirði og áttum þar alveg frábæran dag þrátt fyrir nístingskulda. strákarnir nutu þess að taka þátt í jólaballi með Hara systrum (emil fékk meira að segja að syngja með þeim í míkrafóninn jólalag), auk þess sem þeir hittu bæði íslenska jólasveina og grýlu sjálfa. Við fríða nutum þess að skoða í verslunarbásunum í jólalandinu en þar er til sölu allskonar íslenskt handverk. ég freistaðist til að kaupa mér jesúbarnið á steini úr hafnfisku hrauni handgert af nunnunum í Hafnarfirði... rosalega falllegt. Og kostaði þó ekki nema 550 krónur...
Sunnudagskvöldinu eyddum við svo í afmæli hjá mínum elskulega mági, Inga Geir og fórum heim sprengsödd, alltof seint.... en það getur gerst þegar maður gleymir stað og stund í gleðinni. Takk fyrir okkur.
Það eru fullt af nýjum myndum í nýju albúmi
Þið megið vænta frétta af okkur fjölskyldunni aftur að viku liðinni
Lifið heil
Kolbrún out
Um bloggið
Kolbrún bloggar
Bloggvinir
- Jonginn
- Hafsteinn Hlynsson
- Berta María Hreinsdóttir
- Ragnar Hermannsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Guðmundur Þór Jónsson
- Ingi Geir Hreinsson
- Helga Jónsdóttir
- Rebbý
- Ferðablogg
- Sandra
- Tómas Ingi Adolfsson
- Anna Gísladóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Vilborg
- Guðborg Eyjólfsdóttir
- Jorge Eduardo Montalvo Morales
- Magnús Helgi Björgvinsson
- .
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Aþena Marey
- Brynja Sól
- Árni Birgisson
- Dofri Örn
- Mamma
- Bríet
- Stefán Ingi Guðjónsson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Vilhjálmur Óli Valsson
- Svala Erlendsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 312190
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jeminn hvað er gaman að skoða myndirnar....þið eruð ekkert venjulega dugleg að gera skemmtilega hluti. Mikið væri ég til í að vera með ykkur í þessu öllu saman.
Emil bara flottastur í leikritinu og vá hvað hefur verið gaman á jólaballi Hólabergs, ég sakna Hólabergs ekkert smá
Veistu Kolla....þetta nýja "lúkk" fer þér geggjað vel........haltu áfram að hugsa svona vel um þig, þú átt það svo skilið og maður sér alveg hvað þú blómstrar.
Knús til ykkar allra og ástarþakkir fyrir sendinguna
Berta María Hreinsdóttir, 9.12.2008 kl. 09:55
Lúkkið fer þér vel Kolla:) Það er ekki annað hægt víst að dýrustu skærin í bænum voru í hárinu þínu:) Hafið það gott:)
Guðmundur Þór Jónsson, 11.12.2008 kl. 10:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.