2.12.2008 | 12:39
Í upphafi aðventu
Aðventan er minn uppáhaldstími.... undirbúningur jólanna... Mig hlakkar til að eiga þennan undirbúningstíma framundan, skreyta, baka og njóta aðventunnar. Ég er aðeins farin að skreyta en á enn eftir nóg. Ég er nefnilega búin að finna jóladótið mitt sem aldrei fannst í fyrra:)
Vikan sem við áttum var viðburðarrík að vanda og margt sér til dundurs fundið:
* Ég fór á bekkjarkvöld með Hafsteini og var það virkilega gaman
* Það var haldið jólapartý hjá Hólabergi, og var það alveg hreint frábær skemmtun. Þemað var að allir komu með jólasveinahúfu og saumaði Jón Ingi húfu fyrir mig sem á stóð The Boss... Myndirnar tala sínu máli sem eru í albúmi
* Við fórum á Jólaföndur í Seljaskóla í vikunni þar sem var föndrað bæði jólakúlur og jólakort
* Við heimsóttum Perluna í vikunni, Emil elskaði gosbrunninn þar og fékk aldrei nóg af honum
* Við fórum í aðventukaffi til mömmu og pabba í Trönuhólana, heitt súkkulaði og huggulegheit
* Við fórum í afmæli til Evu Rakelar sem var 4 ára, hún er nú meiri dúllan:)
* Við fengum svo gesti í mat til okkar á sunnudaginn, Guðný vinkona mín sem býr í Horsens er stödd á landinu með strákana sína Janus og Karl Vigni. Janus er mikill vinur Emil og því urðu fagnaðarfundir á skemmtilegu sunnudagskvöldi.
Næsta vikan er nú hafin og ævintýrin nú þegar hafin... þið fáið betur að vita af því í næsta vikubloggi, en það eru fullt af nýjum myndum í nýju albúmi
Njótið aðventunnar
Kolbrún
Um bloggið
Kolbrún bloggar
Bloggvinir
-
Jonginn
-
Hafsteinn Hlynsson
-
Berta María Hreinsdóttir
-
Ragnar Hermannsson
-
Kristbjörg Þórisdóttir
-
Guðmundur Þór Jónsson
-
Ingi Geir Hreinsson
-
Helga Jónsdóttir
-
Rebbý
-
Ferðablogg
-
Sandra
-
Tómas Ingi Adolfsson
-
Anna Gísladóttir
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Vilborg
-
Guðborg Eyjólfsdóttir
-
Jorge Eduardo Montalvo Morales
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
.
-
Kristbjörg Þórisdóttir
-
Aþena Marey
-
Brynja Sól
-
Árni Birgisson
-
Dofri Örn
-
Mamma
-
Bríet
-
Stefán Ingi Guðjónsson
-
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
-
Vilhjálmur Óli Valsson
-
Svala Erlendsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 58
- Frá upphafi: 312793
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 54
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ohhh þarf ég að bíða í heila viku eftir jólasveinamyndinni
.
Helga Jónsdóttir, 2.12.2008 kl. 16:18
Takk Kolla mín og njótið þið sömuleiðis aðventunnar
.
Hlakka til að sjá ykkur í des.
kv. Kidda.
Kristbjörg Þórisdóttir, 4.12.2008 kl. 14:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.