18.8.2008 | 20:06
Ég á vegg
Loksins er veggurinn á efstu hæð hússins okkar kominn upp, þvílík hamingja. Við fengum tvo smiði hér klukkan 8 í morgun og nú í dagslok er veggurinn tilbúin til málningar. Húsbóndinn veit hvað hann verður að gera á morgun. Þessi veggur var nauðsynlegur til að tryggja öryggi yngsta sonar hér á heimilinu, en þegar húsið okkar var byggt var það greinilega byggt að vanefnum og handriðið sem er á milli hæða er vægast sagt ólöglegt, það er eða VAR svo auðvelt að detta niður. Sem betur fer er nú búið að laga þennan þátt á heimilinu og við orðin örugg hér:)
Annars var helgin bara ljúf hjá okkur. Fórum í gær í afmæli til Magnúsar frænda en hann er 5 ára í dag. Allir skemmtu sér stórvel í afmælinu og það er skemmst frá því að segja að það var ekki eldaður kvöldmatur á heimilinu í gærkvöldi.
Nú svo var vakað og horft á handboltann í nótt... ég get því ekki neitað að ég er búin að vera soldið þreytt í dag... en það er ekki á hverjum degi sem það er svona handboltaveisla, en það er alltaf hægt að sofa bara seinna. Og ekki ætla þeir að láta blóðþrýstinginn fara niður þeir landsliðsmenn og spennan í lokakaflanum alveg óbærileg. Enn og aftur endaði ég inn í eldhúsi og kíkti fram á sjónvarpið. Nú er bara næsta mál að vinna Pólverja og þá verða allir glaðir.
Ég setti inn fullt af nýjum myndum í nýtt albúm
Out
Kolbrún
Um bloggið
Kolbrún bloggar
Bloggvinir
-
Jonginn
-
Hafsteinn Hlynsson
-
Berta María Hreinsdóttir
-
Ragnar Hermannsson
-
Kristbjörg Þórisdóttir
-
Guðmundur Þór Jónsson
-
Ingi Geir Hreinsson
-
Helga Jónsdóttir
-
Rebbý
-
Ferðablogg
-
Sandra
-
Tómas Ingi Adolfsson
-
Anna Gísladóttir
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Vilborg
-
Guðborg Eyjólfsdóttir
-
Jorge Eduardo Montalvo Morales
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
.
-
Kristbjörg Þórisdóttir
-
Aþena Marey
-
Brynja Sól
-
Árni Birgisson
-
Dofri Örn
-
Mamma
-
Bríet
-
Stefán Ingi Guðjónsson
-
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
-
Vilhjálmur Óli Valsson
-
Svala Erlendsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til lukku með vegginn. Best að vera löglegur. Hafið það gott.
Guðmundur Þór Jónsson, 19.8.2008 kl. 10:30
Takk fyrir okkur um daginn...alltaf jafn gaman að sækja ykkur hjónakornin heim. Mitt fyrsta verk þegar ég kem heim er að skanna myndirnar úr Miðholtinu....múhhhhaaaaa!!!
Verðum svo í bandi....þeim elsta langar mjög mikið að fá að kíkja líka
Vilborg, 20.8.2008 kl. 14:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.