Söknuður

Jæja, þá eru mamma og pabbi farin frá okkur.  Þau komu á mánudaginn og dagarnir með þeim liðu svo hratt að ég er bara ekki að trúa því að þeir séu búnir.  Það er búið að vera mjög gaman að hafa mömmu og pabba í heimsókn.  Við erum búin að fara með þeim til Árósa, Silkiborgar og Herning og auk þess fórum við á Himmelbjerget.  Svo var slappað af með strákunum, borðaður góður matur, kíkt í búðir og í gærkvöldi fórum við svo öll saman að borða á Jensens Böfhus.  Bara ljúft líf.  Verst að pabbi var svo bitin hér af flugunum að hann fer allur merktur heim eftir dvölina:)

Við vorum sorgmædd að þurfa að kveðja þau í dag:(  sérstaklega Hafsteinn minn og Emil sem vildu báðir fara heim til Íslands með ömmu og afa.  En það styttist í það.  Það er huggun í söknuðinum á heimilinu í dag að við fáum næstu gesti á morgun, en þá koma Gunna, Óskar og Erla Björg og hlökkum við mikið til að eyða fullt af dögum með þeim.  

Í kvöld er það hinsvegar Bjargey Una sem ég er að fara að hitta en hún kom til Danmerkur í dag og fengum við Berta eitt kvöld með henni og Kiddu:)  Stefnan er tekin á að fara út að borða.

Flottir félagar, Emil, íþróttaálfurinn og bangsi

 

 

 

 

 

 

 

 

Það eru fullt af nýjum myndum í albúmi frá heimsókn mömmu og pabba

Kv

Kolbrún 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Þór Jónsson

Alltaf erfitt að kveðja. Best að hugsa hvað þið nutuð ykkar með þeim. Hafið það gott.

Guðmundur Þór Jónsson, 5.6.2008 kl. 18:30

2 Smámynd: Helga Jónsdóttir

Gaman að skoða myndirnar .  Geðveikar pulsumyndirnar af pabba .  Það er alltaf sama sagan hjá ykkur, það er ALDREI hægt að hringja í ykkur, aldrei heima

Helga Jónsdóttir, 5.6.2008 kl. 20:01

3 identicon

Góða skemmtun með gestunum:) væri til í smá fréttir af ykkur...

Ég væri nú alveg til í að vera í hitanum með ykkur, elska sólina, en það styttist i fríið okkar, ætlum að vera 4 vikur í burtu förum til Noregs og síðan til Krítar þaðan. Það verður svo gaman að hitta ykkur í haust, þegar þið komið heim. Bið að heilsa öllum

Dóra (IP-tala skráð) 7.6.2008 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kolbrún bloggar

Höfundur

Kolbrún Jónsdóttir
Kolbrún Jónsdóttir

Smellið á myndina og þá fáið þið allar upplýsingar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 310010

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband