27.5.2008 | 19:56
Frumburðurinn komin með bóluna
Já, frumburðurinn okkar sem er á fjórtánda ári er komin með unglinga graftabólu og er ekki par hrifinn af því. Hann hefur undanfarna mánuði verið að taka út hellings unglingsþroska með tilheyrandi breytingum á líkama og rödd. Röddin er farin að bresta. Hann er að breytast í fullorðinn mann og mér finnst það svoooo skrýtið. Ég man eins og gerst hefði í gær þegar við stoppuðum í Ártúnsbrekkunni þegar við vorum á leið með hann heim af fæðingardeildinni, til að athuga hvort hann andaði. Þvílíkt miklir nýgræðingar í barnastússi. Og þrátt fyrir að enn geti ég kennt frumburðinum mínum margt, þá getur hann líka kennt mér heilan helling um hugarheim unglingsins í dag. Stundum hefur hann ekki alveg þolinmæði fyrir skilningsleysi mömmu sinnar, ég held að hann haldi stundum að ég hafi aldrei verið unglingur, bara mamma heh. En hann er yndislegur eins og hann er og það er svo gaman að fá að sjá hann breytast úr barni í fullvaxta mann sem er farin að gera sín eigin plön fyrir framtíðina.
En að öðru... rignigin kom loksins í gær til Horsens og var hún mjög kærkomin og boðin velkomin. En hún stóð ekki lengi og nú er sólin farin að skína aftur sem aldrei fyrr og spáin góð fyrir næstu daga.
Gummi er farin frá okkur en hann flýgur heim til Íslands í kvöld. Síðasta deginum hans hér eyddum við með honum ásamt Bertu og Hermanni í Vejle. Við fórum og sýndum honum vindmylluna í Vejle og svo beint í hans uppáhald shopping shopping shopping. Nýlega var opnuð verslunar kringla í Vejle og lá leið okkar þangað í dag ásamt því sem við fórum á göngugötuna í Vejle. Gumminn er því flogin heim í kuldann með fullar töskur og þökkum við honum kærlega fyrir samveruna síðustu viku.
Það er ekki langt að bíða næstu gesta en í næstu viku er von á mömmu og pabba, Guðborgu og fjölskyldu, Gunnu, Óskari og Erlu Björg og svo er planið að reyna að hitta líka Bjargey sem er að koma í stutta ferð til Danmerkur. Það verður því engin lognmolla í kringum okkur næstu daga. Svo er ég auðvitað að fara í þrítugs afmælispartý á föstudaginn til Kiddu og það verður örugglega gaman.
En ég bíð góða nótt í kvöld og ætla að leggjast á koddann með nýjustu bókina sem er á náttborðinu mínu. Það er bókin Einhverfa, spurt og svarað sem Gunna var svo elskuleg að senda mér. Frábær bók sem allir ættu að láta sig varða og lesa.
Nýjar myndir í nýju albúmi
Nótt Nótt
Kolbrún
Um bloggið
Kolbrún bloggar
Bloggvinir
- Jonginn
- Hafsteinn Hlynsson
- Berta María Hreinsdóttir
- Ragnar Hermannsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Guðmundur Þór Jónsson
- Ingi Geir Hreinsson
- Helga Jónsdóttir
- Rebbý
- Ferðablogg
- Sandra
- Tómas Ingi Adolfsson
- Anna Gísladóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Vilborg
- Guðborg Eyjólfsdóttir
- Jorge Eduardo Montalvo Morales
- Magnús Helgi Björgvinsson
- .
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Aþena Marey
- Brynja Sól
- Árni Birgisson
- Dofri Örn
- Mamma
- Bríet
- Stefán Ingi Guðjónsson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Vilhjálmur Óli Valsson
- Svala Erlendsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 256
- Frá upphafi: 311871
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hlakka til að hitta ykkur :)
Guðborg Eyjólfsdóttir, 28.5.2008 kl. 08:57
Takk kærlega fyrir daginn. Hann var rosalega skemmtilegur. Sí ja. Hafið það gott.
Guðmundur Þór Jónsson, 28.5.2008 kl. 23:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.