29.4.2007 | 19:28
Líf og fjör í Laugardalnum í dag
Jæja, þá er enn ein helgin búin. Ég var að hugsa um það yfir kvöldmatnum að mér finndist stundin okkar vera svo oft í sjónvarpinu, það hlýtur að segja mér að mér finnst alltaf vera sunnudagar.
Elsti sonur var í aðalhlutverki í dag en hann var að keppa á sundmóti alla helgina. Við fórum auðvitað í Laugardalshöllina til að fylgjast með honum og mikið rosalega stóð hann sig vel. Þarna voru saman komnir mörg hundruð krakkar á öllu aldri, allsstaðar að landinu og ríkti mikið fjör samhliða keppnisandanum.
Eftir að sundmótinu lauk í dag fórum við stórfjölskyldan í heimsókn til tengdaforeldra minna. Þar var okkur boðið hreint frábært heimabakað speltbrauð og vorum við leyst út með uppskrift. Það var því bakað á heimilinu í síðdeginu og búið að smyrja ofan í öll nestisboxin nýbakað speltbrauð.
Þar sem nokkrar umræður sköpuðust á blogginu mínu fyrir nokkru um notkun spelts í matargerð læt ég fylgja með uppskriftina af þessu góða brauði sem var bakað hér í dag
6 dl gróft spelt
1 dl hveitiklíð
1 tsk salt
5 tsk lyftiduft
Grasskersfræ og sólblómafræ eftir smekk
5 dl AB mjólk
Öllu hrært saman og sett í mót, bakað í 40 mín við 175 gráður.
Verði ykkur að góðu
Kolbrún out
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Kolbrún bloggar
Bloggvinir
-
Jonginn
-
Hafsteinn Hlynsson
-
Berta María Hreinsdóttir
-
Ragnar Hermannsson
-
Kristbjörg Þórisdóttir
-
Guðmundur Þór Jónsson
-
Ingi Geir Hreinsson
-
Helga Jónsdóttir
-
Rebbý
-
Ferðablogg
-
Sandra
-
Tómas Ingi Adolfsson
-
Anna Gísladóttir
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Vilborg
-
Guðborg Eyjólfsdóttir
-
Jorge Eduardo Montalvo Morales
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
.
-
Kristbjörg Þórisdóttir
-
Aþena Marey
-
Brynja Sól
-
Árni Birgisson
-
Dofri Örn
-
Mamma
-
Bríet
-
Stefán Ingi Guðjónsson
-
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
-
Vilhjálmur Óli Valsson
-
Svala Erlendsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.8.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.