Færsluflokkur: Dægurmál
12.10.2008 | 10:36
Vikubloggið....
Jæja, þá er enn önnur vikan búin... önnur vikan sem ég var ekki í vinnunni en mér er farið að líða mikið betur og á því von á því að fara að vinna í næstu viku.
Það sem stendur hæst eftir er vikuna er ýmislegt:
* ég fór á morgunverðarfund um einelti og forvarnir á Hótel Loftleiðum og var sérstaklega ánægð með að fá tækifæri til að sitja þennan fund
* Hafsteinn minn var með tómstundaklúbb með 6 bekkjarfélögum í vikunni og skipulögðum við skautaferð og svo fórum við hingað heim þar sem allir gerðu sínar eigin pizzur... allir rosa ánægðir með þann dag enda mjög vel heppnaður.... ég þakka Guðrúnu og Guðný vinkonum mínum fyrir hjálpina þann dag:)
* Ég skráði okkur í geðræktarhlaup sem fram fór í gær og hlupum við 2 km skemmtiskokk. Ég og strákarnir gerðum eiginlega soldið met.. Jón Ingi var fyrstur í mark á 8.14 mín en ég og Emil vorum síðust í mark (enda fannst Emil þetta ansi langt). En allir fengu verðlaunapening í lokinn og Kristal og fóru sáttir heim á leið.
* Við fórum líka út í Viðey... en Yoko Ono er að bjóða landsmönnum í Viðey þessa vikuna frítt i tilefni af afmæli Johns Lennons heitins. Það var bara æðisleg ferð og gaman að fá að sjá loksins friðarsúluna með berum augum..... við eyddum góðum tíma þar og skemmtum okkur mjög vel:)
* Svo fórum við í afmæli til Erlu Bjargar sem er alltaf svo sæt:)
* Ég fór í world class alla dagana í síðustu viku og er rosa ánægð með með mig og sé að þolið er aðeins að aukast
* Hlynur ákvað að joina mér og er hættur að reykja sígarettur....
Ég setti inn fullt af nýjum myndum í nýtt albúm frá síðustu viku:)
Hvað næsta vika ber í skauti sér veit engin ennþá... vonandi verður rólegra í efnahagsmálunum en verið hefur í þessari viku....
En ég veit að við strákarnir ætlum að byrja vikuna á því að fara í afmæli til Antons og Aniku í dag og hlökkum mikið til:)
Verum góð við hvort annað
Kolbrun
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.10.2008 | 15:32
Hlúðu að því sem þér þykir vænt um
Í dag er alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn. Frábær dagskrá í Perlunni í dag sem ég því miður get ekki tekið þátt í, en ég ætla að taka þátt í geðhlaupinu sem verður ræst kl 13 í Nauthólsvík á morgun í tengslum við þennan dag. Þannig ætla ég að sýna málefninu stuðning í verki. Enda málið mér skylt heh.
Geðorð dagsins í dag er:
Hlúðu að því sem þér þykri vænt um
Það ætla ég að fara að gera akkúrat núna, en ég ætla að kíkja á litla vinkonu, hana Erlu Björgu sem á afmæli og er orðin 11 ára skvís og mér þykir alveg ótrúlega mikið vænt um þessa stelpu og auðvitað fjölskylduna hennar alla:)
Dóra Heiða mín... ég óska þér líka innilega til hamingju með daginn... að stytist í stórann dag hjá þér:)
Kv
Kolbrún
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.10.2008 | 23:04
Miklar breytingar á einni viku
Heil og sæl
Þið hafið sjálfsagt tekið eftir því að ég er ekki alveg að nenna blogginu mínu þessa dagana en hef gert mér það markmið að skrifa allavega einu sinni í viku og setja þá líka inn nýjar myndir frá lífi okkar fjölskyldunnar.
Í raun má segja að síðasta vika hafi skapað ákveðin þáttaskil í mínu lífi. Ég þurfti að horfast í augu við það að vera send í veikindaleyfi frá vinnunni minni... vinnunni minni sem er mér ótrúlega mikils virði og þangað hlakka ég til að mæta hvern morgun... og það að ég skuli vera óvinnufær að mati lækna var áfall útaf fyrir sig... en að hugsunin um að geta ekki mætt í vinnu hvern morgun var mér erfiðari.
En ég ákvað að velja mér viðhorf og snúa vörn í sókn.
Ég ákvað að nota þennan tima sem læknirinn sagði mér að vera í hvíld til að hugsa eingöngu um sjálfa mig og reyna að búa til lífstíl sem mig langar að halda áfram að lifa eftir þegar ég fer aftur inn í samfélagið sem "heilbrigður" einstaklingur. Læknirinn minn hafði jú mælt með því við mig að fara í heita potta í sundlaugunum til að reyna að losa um vöðvabólgu en det var det.
Ég sjálf ákvað að ganga skrefinu lengra og fór og keypti mér kort í world class og hef mætt þangað samviskusamlega alla vikuna og farið svo í sundlaugarnar á eftir og synt mína 200 metra. Ég hef svo endað á heita pottinum:) Og ég hefði ekki trúað því hvað mér finnst þetta gaman.
Í fyrramálið á ég að hitta þjálfara í Laugum sem fer með mér yfir öll þau tæki sem stöðin hefur upp á að bjóða og kennir mér og ráðleggur mér og mikið hlakka ég til þess... eins og staðan er í dag, þá held ég að ég þurfi BA gráðu til að læra á World Class í Laugum.... en sjáum til.
En ég hef svo gengið enn lengra í síðustu viku... pantaði mér tíma í fótasnyrtingu og er með flottustu tásurnar í bænum með naglalakki og allt.... (þið sem ekki vitið, þá er ég almennt með ljótar kartneglur sem komu í kjölfar bruna).
Þannig að markmiðið er að vera bara að halda áfram að láta mér líða vel... og á morgun á ég líka tíma í klippingu, bara gaman:)
En vikan hefur að sjálfsögðu verið skemmtileg með strákunum mínum...
Við fórum í leikhús og sáum Skilaboðaskjóðuna, bara gaman.
Við fórum í bíó á Lukku Láka (strákunum fannst hún skemmtileg, ég svaf)
Mamma átti afmæli 2 október og bauð okkur í æðislegt lambalæri
Edda Helga frænka mín á afmæli á morgun og bauð okkur í flotta afmælisveislu í dag
Hvað skyldi svo næsta vika bera í skauti sér.... það sem engin veit ennþá
Fullt af nýjum myndum í albúmi
Kolbrún out
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.9.2008 | 11:38
Lifum lífinu
Það er akkúrat það sem við fjölskyldan erum að gera þessa dagana... að njóta þess að vera til og njóta þess að vera saman. Við búum til minningar hjá börnunum okkar, minningar sem vonandi eiga eftir að setjast fastar um ókomna tíð hjá þeim og vonandi birtast sem góðar minningar hjá þeim.
Fullt af minningum voru búnar til í síðustu viku og setti ég inn fullt af myndum af þeim bræðrum í lífi og leik í nýtt albúm...
Eitt af því markverðasta í síðustu viku var að frumburðurinn, 13 ára hefur nú skráð sig í kúrs í Háskólanum í Reykjavík í fjármálastærðfræði og mun engin annar er Pétur Blöndal kenna honum þann kúrs. Jón Ingi er ekki lítið spenntur að fá að fara í Háskóla kúrs...enda er strákurinn þokkalega að standa sig í skólanum og kemur heim með hverja hæstu einkunnina á fætur annarri... hann jafnvel náði því að fá hæstu einkun árgangsins í vikunni sem leið.
Kíkið endilega á myndirnar okkar frá síðustu viku
Og njótið næstu viku....
Kolbrún out
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.9.2008 | 19:52
Verð að sýna ykkur eina mynd...
"Stal" henni á facebook af fyrrum skólafélaga mínum úr Austurbæjarskóla... snilld
Klikkið á myndina til að sjá hana stærri og giskið svo á hvar ég er heheheheheheheh
Kolbrún
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.9.2008 | 19:35
Emil og Borgarstjórinn í Reykjavík
Já, Emil kyssti Borgarstjórann í Reykjavík í dag og færði honum blómvönd frá Breiðholtsbúum.
Hann var valinn til þessa verkefnis af fjölda barna sem voru á hátíðarsamkomu í Breiðholti í dag í tilefni af lokadegi Breiðholtsdaga sem hafa staðið undanfarna viku.
Ohhh hvað ég var stolt af þessum litla strák mínum... labbaði með blómvönd til borgarstjórans og rétti honum og sagði hátt skýrt.. gjörðu svo vel borgarstjóri. Hann fékk svo koss fyrir og myndir með borgarstjóranum.
Bara falleg stund:)
Setti inn myndir frá deginum í dag í nýtt albúm
Kolbrún out
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.9.2008 | 21:41
Það er fluga í súpunni minni
Eða var það hundur í innkeyrslunni minni.....
Ég er ekki að grínast með hvað ég er óstjórnlega hrædd við hunda. Það er bara sjúklegt. Í vikunni lenti ég í því að ég þurfti að skreppa heim úr vinnunni til að ná í ákveðna lykla. Renni bílnum inn í innkeyrsluna og á eftir bílnum kemur hlaupandi hundur. Hann sest í innkeysluna mína og horfir á mig með slefið út um allt.... eftir korter sat ég enn í bílnum og spáði í hvað einn hundur gæti horft lengi á mig... en að ég hafi þorað út úr bílnum... ekki séns.
Það var því hundurinn sem gafst upp að lokum og hljóp í burtu þannig að ég náði að komast í hendingskasti upp tröppurnar og stinga lyklinum í skrána og skella fast á eftir mér hurðinni með hjartsláttinn á allof miklu tempói.
Eftir að hafa róað mig aðeins niður hérna heima, þá var aftur haldið út í bíl, enda vinnudagurinn bara rétt tæplega hálfnaður.
Ég sá hundinn ásýndar við leikskóla yngsta sonar....
Ég brunaði framhjá honum á ofurbílnum mínum með símann á eyranu
Þar fékk ég loksins svar...
HUNDAEFTIRLITIÐ GÓÐANN DAGINN
Ekki séns að ég hafi samt náð í hundaeftirlitið í fyrstu tilraun
Ó nei
112
gef þér samband við lögreglu
Lögreglan: Ef hundurinn er ekki búin að bíta neinn komum við ekki... ef hundurinn er búin að bíta einhvern komum við og skjótum hann. Hrindu í Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg góðan daginn
Ég gef þér samband við umhverfissvið
Umhverfissvið góðan daginn
Já, ég gef þér samband við Hundaeftirlitið
Hundaeftirlitið... ég skal gefa þér gsm símann hjá hundaeftirlitsmanni
HEHEHEHEHE
ÞAÐ SÍMANÚMER VERÐUR GEYMT EN EKKI GLEYMT
Það er ekki gott fyrir "besta vin mannssins" að lenda í mínum klóm
Kolbrún out
PS... Jónína... við viljum svo gjarnan hitta ykkur þegar þið komið til Íslands... hringdu í mig þegar þið lendið í síma 8562334 og við mælum okkur mót... eruð þið game í að koma í mat til okkar?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.9.2008 | 00:23
Myndir....
Setti inn fullt af myndum í kvöld en nenni ómögulega að blogga....
Bloggandinn kemur yfir mig, ég lofa
En spurninginn sem brennur á vörum ykkar allra skal þó svarað.... JÁ ÉG ER ENNÞÁ REYKLAUS OG FJÓRÐA VIKAN BYRJUÐ. Takk fyrir það
Kolbrún out
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.9.2008 | 22:53
Læst aftur
Kæra fjölskylda og vinir,
Ég hef ákveðið að læsa blogginu mínu aftur...
Til að gefa sem fæstum lykilorðið hef ég gefið flestum mínum bloggvinum aðgang átomatistk og mun vanda vel valið hverjir fá lykilorðið. Þannig að ef þú ert að lesa þetta, þá eru sko svona INN hjá mér, heh.
Ástæðan fyrir þessu er sú að það eru ákveðnir aðilar sem hafa verið að njósna um okkur fjölskylduna í gegnum bloggið mitt og ég kæri mig ekki um það. Fólk sem ég ekki vill að sé að snuðra í okkar málum.
Einnig hefur það komið upp að unglingarnar sem ég er að þjónusta á vinnustaðnum mínum eru farnir að sitja um bloggið mitt og jafnvel farnir að kommenta og það finnst mér ekki passa heldur.
Mig langar að biðja þá sem fá lykilorðið frá mér að halda því fyrir sig.... please....
Kolbrún
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
9.9.2008 | 11:15
Ég er reyklaus, SAUTJÁNDA DAGINN Í RÖÐ
Hér er alger bloggleti í gangi...
Ég afrekaði þó að setja inn fyrir ykkur rúmar 80 myndir....
Annars er það helsta í fréttum
* ég er reyklaus SAUTJÁNDA DAGINN Í RÖÐ
* við eigum nú loksins tvo bíla aftur, blár Yaris bættist í safnið
* Hlynur er byrjaður í Háskóla Íslands
* Jón Ingi er byrjaður í fermingarfræðslu
* Jón Ingi er byrjaður að æfa frjálsar hjá ÍR
* Emil er byrjaður á leikskólanum
* Afi Jón gaf Hafsteini hjól og nú hjólar hann alla daga og öll kvöld
* Við fjölskyldan erum kominn inn í íslenska heilbrigðiskerfið aftur
* Mig langar til USA... tekið er á móti frjálsum framlögum hér á blogginu
* ég er reyklaus SAUTJÁNDA DAGINN Í RÖÐ
Kolbrún out
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Kolbrún bloggar
Bloggvinir
- Jonginn
- Hafsteinn Hlynsson
- Berta María Hreinsdóttir
- Ragnar Hermannsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Guðmundur Þór Jónsson
- Ingi Geir Hreinsson
- Helga Jónsdóttir
- Rebbý
- Ferðablogg
- Sandra
- Tómas Ingi Adolfsson
- Anna Gísladóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Vilborg
- Guðborg Eyjólfsdóttir
- Jorge Eduardo Montalvo Morales
- Magnús Helgi Björgvinsson
- .
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Aþena Marey
- Brynja Sól
- Árni Birgisson
- Dofri Örn
- Mamma
- Bríet
- Stefán Ingi Guðjónsson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Vilhjálmur Óli Valsson
- Svala Erlendsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar