Lifum lífinu

Það er akkúrat það sem við fjölskyldan erum að gera þessa dagana... að njóta þess að vera til og njóta þess að vera saman.  Við búum til minningar hjá börnunum okkar, minningar sem vonandi eiga eftir að setjast fastar um ókomna tíð hjá þeim og vonandi birtast sem góðar minningar hjá þeim.  

Fullt af minningum voru búnar til í síðustu viku og setti ég inn fullt af myndum af þeim bræðrum í lífi og leik í nýtt albúm...

Eitt af því markverðasta í síðustu viku var að frumburðurinn, 13 ára hefur nú skráð sig í kúrs í Háskólanum í Reykjavík í fjármálastærðfræði og mun engin annar er Pétur Blöndal kenna honum þann kúrs.  Jón Ingi er ekki lítið spenntur að fá að fara í Háskóla kúrs...enda er strákurinn þokkalega að standa sig í skólanum og kemur heim með hverja hæstu einkunnina á fætur annarri... hann jafnvel náði því að fá hæstu einkun árgangsins í vikunni sem leið.

Ella, ég , Særún og Guðrún... ÞroskaþjálfaklíkanSmá danskir dagar heh

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bræður við höfnina í ReykjavíkEmil og Jón Víðis töframaður

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kíkið endilega á myndirnar okkar frá síðustu viku

Og njótið næstu viku.... 

Kolbrún out


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Þór Jónsson

Efast nú ekki um annað en þeir eigi þessar minningar um ókmna tíð. Svo geta þeir kennt sínum börnum. Hafið það gott.

Guðmundur Þór Jónsson, 29.9.2008 kl. 13:10

2 identicon

Sæl Kolla rosalega er Jón Ingi að standa sig vel æðislegt   ekki leiðinlegt að geta státað af góðum einkunum hann hefur þetta frá henni mömmu sinni sem er svo drífandi og metnaðargjörn  sjáumst í vikunni á Taco bell hehe 

Fríða Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 14:08

3 Smámynd: Berta María Hreinsdóttir

Dugnaðarforkar þessir synir ykkar......

Frábært hjá ykkur að njóta lífsins saman fjölskyldan, enda ekkert mikilvægara en fjölskyldan en því miður eru ekki allir sem hugsa svona vel um hana eins og þið.

Knús til ykkar allra

Berta María Hreinsdóttir, 29.9.2008 kl. 16:48

4 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Vá til hamingju Jón Ingi!!!

Kær kveðja frá Árósum yfir til ykkar.

Kristbjörg Þórisdóttir, 30.9.2008 kl. 14:34

5 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Til hamingju með þetta Jón Ingi, enda ertu frændi minn hahaha  Smá gálgahúmor

Guðborg Eyjólfsdóttir, 7.10.2008 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kolbrún bloggar

Höfundur

Kolbrún Jónsdóttir
Kolbrún Jónsdóttir

Smellið á myndina og þá fáið þið allar upplýsingar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 309871

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband